Hvernig áttu að bregðast við þegar þú færð kertavax í ullarpeysu

Ull sem þig klæjar undan? Frystu hana

Ull getur valdið kláða. Svo hvað gerirðu þá þegar þú vilt helst hafa mjúkar flíkur við hörundið? Hendirðu þeim? Nei. Næst þegar þú ert með ullarpeysu eða aðrar ullarvörur sem erta hörundið skaltu setja þær í frystinn. Innan nokkurra klukkustunda ætti þig ekki að klæja lengur undan ullinni.

Vertu róleg(ur)

Kertavax á að ýta undir frið og rólegheit, jafnvel eftir að það hefur lekið niður á uppáhaldssköpunarverk okkar, loðnu ullarpeysuna með hreindýrsmunstrinu framan á. Og jafnvel þó það hafi tekið heilan vetur að búa það til með stuðningi „prjónaskaps fyrir byrjendur“ er engin ástæða til að fyllast skelfingu. Rífðu hvorki í hár þér né þræðina í peysunni (þá nærðu ekki aðeins vaxinu heldur einnig ullarþráðum). Vertu alveg róleg(ur) og settu umrædda ullarflík í plastpoka. Lokaðu plastpokanum og settu hann í frystinn. Eftir um það bil tvær klukkustundir ætti kertavaxið að flagna af. Ef ekki, settu þá eldhúsrúllubréf eða kaffifilter á blettinn og straujaðu. Þvoðu síðan samkvæmt þvottaleiðbeiningunum. Og slakaðu á.