|
HomeMADE - The inside story
|
HeimaGert ofn
Einstök nýjung með eiginleikum hefðbundinna viðarkynntra ofna! Snilldarleg bogadregin hönnun ofnsins gefur frábæran árangur við bakstur líkt og í hefðbundnum viðarkynntum bakarofnum. Nákvæm staðsetning hitaelementa tryggir fullkomin bökunarskilyrði í þessari nýstárlegu hönnun næstu kynslóðar Gorenje innbyggiofna. Ný nálgun í matargerðarlist sem byggir á áralangri reynslu og rannsóknum í hönnunar- og þróunardeildum Gorenje í samvinnu við ráðandi vísindastofnanir. Ný hönnun undir áhrifum fornar visku!
Mikið pláss
Gorenje ofnarnir rúma óvenju mikið magn eða 60 lítra sem gerir þá meðal þeirra stærstu á markaðnum og taka þeir auðveldlega 7 kg kalkún. Hið mikla innra rúmmál ofnsins kemur ekki í veg fyrir að hann nái A flokki í orkunýtingu og er einn af orkuspörustu ofnunum á markaðnum. Það er að þakka hinni frábæru hönnun. Upplagður til að elda marga rétti í einu og fyrir stærri fjölskyldusamkomur og matarveislur í heimahúsi!
Hröð forhitun: 200 °C á 6 mínútum
Markaðskannanir segja að hröð forhitun sé einn af meginkostum ofna. Hið sérstaka ávala loft í ofninum ásamt góðum eiginleikum hitaelementana gerir það að verkum að það tekur ofninn aðeins um 6 mínútur að ná 200 °C. Þú getur sparað um 30% tíma þinn og borið fram pítsur, kökur og aðrar matvörur sem þurfa forhitaðan ofn hraðar en nokkru sinni fyrr. Innbyggt ljós og viðvörunarhljóð lætur þig vita þegar ofninn hefur náð tilskildu hitastigi.
Rafrænn snertirofi til stillingar á klukku
Nýtt á markaðnum! Gorenje ofnar hafa frumlegan eiginleika á rafrænni klukku. Snertirofarnir gera þér mögulegt að stilla eldunartíma og velja rétt hitastig, sem hægt er að fylgjast með á stjórnborðinu allan eldunartímann. Viðvörunarhljóð lætur vita þegar eldunartíma lýkur. Yfirborðið á klukkunni er fullkomnlega slétt, sem auðveldar öll þrif. Nýi rafræni snertirofinn er kærkomin nýjung frá Gorenje fyrir notendavæna vinnu.
Mjög djúp steikarskúffa
Fyrir sælkera sem kunna að meta heimabakað brauð, lasagne, súkkulaðiköku og annað því um líkt, höfum við hannað sérstaklega djúpa 5 sm ofnskúffu. Ofnskúffan er húðuð með EcoClean glerungi sem gerir öll þrif sérstaklega þægileg með tæru vatni án þess að nota skaðleg efni. Því til viðbótar verða hliðar ofnsins ekki eins skítugar þar sem háu hliðar ofnskúffunnar minnka möguleikann á að matarfita slettist á þær. Hið fjölbreytta úrval ofnskúffa býður einnig upp á hefðbundnar stærðir bæði glerskúffur og hefðbundnar ofnskúffur með glerungshúð. Glerskúffan er einnig tilvalin til að bera beint á borð.
Mikið bökunar pláss
Gorenje ofnarnir eru 46 sm breiðir (að innanmáli) og hafa 15% stærra bökunarrými en venja er sem er afrakstur nýrrar hönnunar á ofnunum. Þar sem innan breidd ofnsins er meiri en venja er, er hægt að setja meira magn matvæla í hverja hillu, bæði þegar unnið er á einni hæð, sem og á mörgum hæðum. Sérlega afkastamikið hitaelement í þaki ofnsins sér til þess að hitadreifingin verður jöfn sem skilar sér í frábærum bakstri.
Kjöthitamælir
Sumar gerðir Gorenje ofna eru með innbyggðum kjöthitamæli sem gefur möguleika á því að fylgjast með og stýra kjöthitanum. Þú þarft aðeins að stinga kjöthitamælinum í kjötið og velja kjörhitastig þess. Mælirinn á stjórnborðinu mun láta þig vita þegar kjötið er steikt, nákvæmlega eins mikið og þú vilt. Með kjöthitamælinum getur þú notið fullkominnar steikingar í hvert sinn.
Úrvals EcoClean glerungshúðaðir ofnar og bökunarplötur
Settu hálfan lítra af vatni í djúpu skúffuna og settu í neðstu grindina og veldu léttgufuhreinsun (AquaClean). Ofninn hitar sig upp í 70 °C, gufan sem myndast mýkir upp óhreinindin innan á ofninum. Eftir u.þ.b. 30 mínútur má strjúka óhreinindunum í burtu með mjúkum klút. Árangurinn er undraverður, án þess að nota nokkur hreinsiefni og engin skaðleg umhverfs áhrif.
Kæling á stjórnborðinu með DynamiCooling
Sérstaklega öflugt kælikerfi er hannað til að halda hitanum á stjórnborði ofnsins niðri meðan á notkun stendur (DC) sem og eftir notkun (DC+). Það tryggir verulega kaldara yfirborði stjórnborðsins. Vifta blandar saman köldu lofti við heita loftið í ofninum og þvingar það undir loftrými bak við stjórnborðið. Þegar slökkt hefur verið á ofninum, sér hitanemi um að halda viftunni áfram gangandi þar til hitastigið hefur náð niður fyrir 60 °C (DC+). Með því að halda hitastiginu á stjórnborðinu og hurðinni niðri, bætir DynamiCooling tæknin öryggi við eldamennskuna.
Slétt yfirborð ofnhurðarinnar auðveldar þrif
Ofnhurðina er sérlega auðvelt að fjarlægja af ofninum án þess að hafa skrúfugöt, gúmmílista eða hök (sem safna skít), sem þýðir að það er bæði fljótlegt og auðvelt að þrífa.
Gufuskúffa
Gorenje gerir þér mögulegt að elda matinn á heilsusamlegan hátt með því að nota sérstaka gufuofnskúffu. Matur sem matreiddur er með gufu inniheldur meira af fjörefnum, ilmi og ósviknara bragði en við hefðbundna matreiðslu. Grænmetið þitt mun ekki verða ofsoðið né missa sinn náttúrulega lit. Matreiðsla með gufu gerir þér mögulegt að matreiða án viðbættrar fitu. Gufuofnsettið samanstendur af djúpri ofnskúffu, grind og loki. Gufuofnsettið er einnig hægt að nota hvert í sínu lagi og passar í allar nýrri gerðir Gorenje ofna og eldavéla. 50 sm eldavélar framleiddar eftir 2000; 60 sm eldavélar framleiddar eftir 2002 og innbyggiofnar framleiddir eftir 2003.
Grillplata fyrir kröfuharða
Þetta hagnýta sett er gert úr úrvals, kísilhúðaðri (silicon) álblöndu sem hitnar sérlega hratt og er einkar hentugt til matreiðslu á ljúfengum réttum. Hitinn smýgur inn í plötuna og gufan, ilmurinn og bragðið tryggir að vöðvinn, steikin eða laxinn séu fullkomlega elduð í hvert sinn. Og það besta er að þú þarft ekki að bæta neinni feiti við. Grillplötusettið er einnig hægt að nota hvert í sínu lagi og passar í allar nýrri gerðir Gorenje ofna og eldavéla.
Útdraganlegar brautir. Betri yfirsýn og meira öryggi!
Útdraganlegar brautir, sem hægt er að draga út að fullu, auðveldar aðgengi að ofninum auk þess sem það auðveldar alla yfirsýn á bakstrinum. Hætta á ofbökun er því hverfandi. Brautirnar eru staðalbúnaður í framúrstefnu ofnunum en er auk þess hægt að setja í alla gæðaofna Gorenje. Útdraganlegar 3/4 brautir eru einnig fáanlegar.
Getur ekki verið notað með: BP 8990 E, BP ORA E, BOP 7115 AX, BP 8990 S, BP ORA S, BOP 7325 AX.
Útdraganlegar þriggja hæða brautir
Við notum langar útdraganlegar brautir vegna þess að það gerir bakstur og steikingu öruggari og áhrifaríkari. Einfaldara er að setja í ofninn og umgengni við hann er öruggari. Ofn með útdraganlegum brautum eykur afkastagetu hans þar sem hægt er að baka og steikja á fleiri en einni hæð á sama tíma.
Getur ekki verið notað með: BP 8990 E, BP ORA E, BOP 7115 AX, BP 8990 S, BP ORA S, BOP 7325 AX.
Pítsasteinn
Fylltu heimilið með indælum ilmi af ferskri pítsu í hefðbundnum pítsaofni með því að nota pítsu bakkann. Bakkinn er gerðu úr steini sem ekki þarf að bera á olíu, sem tryggir að heimabakaða pítsan sé ekki aðeins laus við fitu heldur er einnig sérlega stökk. Pítsusettið inniheldur auk pítsusteinsins, viðarbakka sem pítsusteinninn fer á og handhægan pítsuskera.
|
|