Rúmföt
Frábær þurrkun án þess að snúast saman
Þegar stór lök, sængurver og annað í stærra lagi er þurrkað getur myndast stór hnútur í þurrkaranum. Rúmfatakerfið er með vandlega úthugsuðu algrími og tromlan snýst til skiptir í báðar áttir til að hindra samsnúninga og tryggja gæðaþurrkun.
Ungbörn
Ungbarnaföt fá sérlega milda meðferð
Stundum geta lítil barnaföt enn verið aðeins rök að aflokinni þurrkun. Þetta sérstaka kerfi er hannað þannig að hver einasta smáflík er alveg þurr og laus við krumpur
StartDelay
Þurrkað á réttum tíma
Þú getur ákveðið fyrir fram hvenær þurrkun hefst og látið þurrkarann ganga þegar það er hagkvæmast, til dæmis þegar raforkan er á lægra verði. Fötin eru þá þurrkuð á fyrir fram ákveðnu stigi og tilbúin til að strauja eða setja inn í skáp.
StableTech
Minni titringur. Minni hávaði.
Þurrkarinn er með hliðum úr sérhönnuðu efni til að lágmarka titring og hávaða við notkun og til að tryggja stöðugleika tækisins.
Slétt hurð
Fullkominn aðgangur
Þessi stóra hurð er gerð úr einu plaststykki og er skrúfulaus til að tryggja stöðugleika hennar og koma í veg fyrir ískur eða brakhljóð. Hægt er að opna hurðina um 180 gráður til að auðvelda tæmingu og hleðslu vélarinnar.
AutoDrain
Það þarf aldrei aftur að tæma þéttivatnstankinn
Hægt er að tengja barkalausan þurrkara með AutoDrain-slöngu við frárennsliskerfið svo ekki þurfi að gæta þess að tæma þéttivatnstankinn.
ChildLock barnalæsing
Til að verja forvitin börn
Hægt er að læsa stjórnborðinu með því að þrýsta á hnappa í ákveðinni röð svo börnin geti ekki notið tækið þegar þau eru ein heima en líka til að koma í veg fyrir að stillingum sé óvart breytt.
SoftSound
Engin pirrandi hljóðmerki
WaveActive þurrkarar eru ekki aðeins góðir við þvottinn heldur einnig við eyrun. Lágvær hljóðmerki gefa til kynna þá eiginleika eða stillingar sem þú valdir.
Þurrkun með skynjara
Skynjaratækni fyrir skilvirkni
Skynvirk skynjaratækni stýrir sjálfkrafa þurrkferlinu samkvæmt kerfinu sem valið var, tegund þvottar og þess hve þurr hann á að verða. Skynjararnir stöðva þurrkun þegar réttu stigi er náð svo ekki verði um ofþurrkun að ræða.