Einfalt viðmót (þurrkun)
Þrjú skref og þú ert klár
Einfalda viðmótið er búið miðlægum hnappi og gerir þér kleift að hefja þurrkun með þremur einföldum skrefum. Þú þarft aðeins að kveikja á þurrkaranum, velja stillingu og ýta á Start! Þú þarft ekkert að vandræðast með aukavalkosti til að velja viðbótarstillingar og -eiginleika en getur valið stillingar á stóra snertiskjánum til að tryggja að fötin séu jafn þurr og þú vilt.
meira
nálægt
TwinAir
Afkastamikil þurrkun, jafnvel á miklu magni þvotts
Með þessu einkaleyfisverndaða, tvíátta loftblásturskerfi verða stærstu stykkin mjúk, jafn þurr alls staðar og minna krumpuð þegar þau koma úr þurrkaranum.
EcoEye
Orkueyðsla undir stjórn
EcoEye er auðvelt álestrar, gefur þér upplýsingar í rauntíma um hversu afkastamikil stillingin er og hjálpar þér að spara vatn og orku.
Íþróttakerfi
Íþróttafatnaður tilbúinn til notkunar
Viðkvæmur íþróttafatnaður og önnur hátækniefni kalla á sérstaka meðferð. Þess vegna var þróað sérstakt kerfi til að þurrka flíkur sem yfirleitt eru ekki settar í þurrkara.
HeatPump
Sparneytin og þýð
Þurrkarar með hitadælu eru mjög orkunýtnir og ódýrir í notkun, auk þess sem þeir þurrka á mildari hátt en hefðbundin þurrkkerfi. Hitinn í hitadæluþurrkara nær um 50°C sem dugar til að þurrka flestar flíkur án þess að þær ofhitni og hlaupi.
Rúmföt
Frábær þurrkun án þess að snúast saman
Þegar stór lök, sængurver og annað í stærra lagi er þurrkað getur myndast stór hnútur í þurrkaranum. Rúmfatakerfið er með vandlega úthugsuðu algrími og tromlan snýst til skiptir í báðar áttir til að hindra samsnúninga og tryggja gæðaþurrkun.
StartDelay
Þurrkað á réttum tíma
Þú getur ákveðið fyrir fram hvenær þurrkun hefst og látið þurrkarann ganga þegar það er hagkvæmast, til dæmis þegar raforkan er á lægra verði. Fötin eru þá þurrkuð á fyrir fram ákveðnu stigi og tilbúin til að strauja eða setja inn í skáp.
Krumpuvörn
Nær ekkert þarf að strauja
Er ekki tími til að tæma þurrkarann strax? WaveActive-þurrkarar velta öðru hverju það sem í þá er látið allt að 3 klukkustundum eftir að þurrkkerfið hefur lokið sér af svo fötin krumpist ekki að óþörfu.
StableTech
Minni titringur. Minni hávaði.
Þurrkarinn er með hliðum úr sérhönnuðu efni til að lágmarka titring og hávaða við notkun og til að tryggja stöðugleika tækisins.
Ljós í tromlunni
Ekki fleiri stakir sokkar
Ljóstvistinum (LED) er haganlega fyrir komið til að lýsa upp tromluna og auðvelda það að fylla vélina og tæma.
Slétt hurð
Fullkominn aðgangur
Þessi stóra hurð er gerð úr einu plaststykki og er skrúfulaus til að tryggja stöðugleika hennar og koma í veg fyrir ískur eða brakhljóð. Hægt er að opna hurðina um 180 gráður til að auðvelda tæmingu og hleðslu vélarinnar.
AutoDrain
Það þarf aldrei aftur að tæma þéttivatnstankinn
Hægt er að tengja barkalausan þurrkara með AutoDrain-slöngu við frárennsliskerfið svo ekki þurfi að gæta þess að tæma þéttivatnstankinn.
ChildLock barnalæsing
Til að verja forvitin börn
Hægt er að læsa stjórnborðinu með því að þrýsta á hnappa í ákveðinni röð svo börnin geti ekki notið tækið þegar þau eru ein heima en líka til að koma í veg fyrir að stillingum sé óvart breytt.
SoftSound
Engin pirrandi hljóðmerki
WaveActive þurrkarar eru ekki aðeins góðir við þvottinn heldur einnig við eyrun. Lágvær hljóðmerki gefa til kynna þá eiginleika eða stillingar sem þú valdir.
Þurrkun með skynjara
Skynjaratækni fyrir skilvirkni
Skynvirk skynjaratækni stýrir sjálfkrafa þurrkferlinu samkvæmt kerfinu sem valið var, tegund þvottar og þess hve þurr hann á að verða. Skynjararnir stöðva þurrkun þegar réttu stigi er náð svo ekki verði um ofþurrkun að ræða.
Glerhurð með FiltrationSupreme
Hámarks síun með bestu fáanlegu yfirsýn
Glerhurðin gerir þér kleift að fylgjast með þurrkunarferlinu á meðan FiltrationSupreme-kerfið tryggir úrvals síun án þess að takmarka loftflæði. Það er einkaleyfi á gróparlausninni sem auðveldar öll þrif og valkvæð innri lýsing gerir þurrkunina jafnvel enn einfaldari.