TouchControl
Nú geta allir galdrað fram gæðarétti
Nýjasta skynjaratæknin tryggir skýra og einfalda snertistýringu. Yfirborð stýribúnaðar er rennislétt og auðvelt að þrífa.
Uppsetning fellur vel við
Fáguð og glæsileg
Helluborðið flúttar einnig við borðplötuna sem er stór kostur og tryggir þægilega yfirfærslu. Þrifin verða auðveldari og þetta færir eldhúsinu nýtískulegan og fágaðan blæ.
Útblástur eða hringrás lofts
Loft inn eða út úr eldhúsinu
Sogkerfið dregur í sig gufu og matarlykt, festir smáagnir í fitusíunni og blæs lofti út um rás á ytri vegg. Sé þessi lausn ekki möguleg er komið að hringrásarkerfinu. Loftið sogast inn í gufugleypinn, er síað og svo blásið á ný út í eldhúsið.
Hljóðstig
Meiri kraftur með minni hljóðstyrk
Sérlega öflug vél sem snýr frá notandanum og sérstök hljóðeinangrandi efni tryggja hljóðlátan gang gufugleypisins.
Hreinsivísar
Ljósmerki um viðhald
Gufugleypirinn er með ljósmerki fyrir fitusíuna í bæði útsogsog hringrásargleypum sem lætur vita hvenær kominn er tími á hreinsun, auk gaumljóss fyrir skipti á kolasíu. Hvor tveggja skiptir miklu til að ná hámarks árangri.
Tímastillir
Alltaf fersk matseld
Hægt er að láta gufugleypinn slökkva sjálfkrafa á sér eftir 5, 10, 15 eða 20 mínútur til þess að tryggja nægilega hreint loft í eldhúsinu.
Tímastillir
Einhver er alltaf á verði
Hægt er að stilla niðurtalninguna á allt að 99 mínútur. Ef þú veist af reynslunni nákvæmlega hvenær ákveðinn réttur er tilbúinn má stilla tímamælinn þannig að hellan slekkur sjálfkrafa á sér að þeim tíma loknum. Hljóðmerki gefur til kynna að rétturinn sé tilbúinn.